Meira um bakgrunninn? Ýttu hér.
Svona virkar þetta:
- Myndböndin eru öllum opin á Youtube – samtals tæpir 3 klukkutímar.
- Þau eru stutt, um 5 mínútur til (hámark) 16–17 mínútur.
- Þau miðla þekkingu á mismunandi sviðum; þess vegna flokkuðum við þau í spilunarlista, en það er hægt að horfa á hvert myndband fyrir sig.
- Þau henta bæði skólabörnum upp úr 6. eða 7. bekk, unglingum og e.t.v. yngri börnum; efnið er þannig uppsett að kennarinn getur mótað kennsluna m.t.t. aldurs og þekkingar.
- Hverju og einu myndbandi fylgir aukablað fyrir kennara sem útskýrir sumt nánar, bendir á ítarefni og leggur til spurningar sem gætu hentað eftir að nemendurnir eru búnir að horfa á myndbandið (oft er um tvær blaðsíður að ræða).
- Þessi heimasíða forvitni.net bendir einnig á ýmis konar bækur, tímarit, myndbönd og fleira sem er nátengt íslenskum landbúnaði. Ef þú finnur ekki valmyndina, ýttu hér.
- Auk þess geta allir skólar pantað ókeypis bekkjarsett af bókinni „Litadýrð – handbók um liti í íslenska sauðfjárstofninum“ (meira um hana hér – skrunaðu niður á viðkomandi síðu til þess; þú notar ekki pöntunarformið þar heldur skrifar okkur tölvupóst á forvitni [hjá] forvitni [punktur] net ).
- Allt efni, sem er aðgengilegt á þessari síðu, má sýna, prenta og dreifa að vild án þess að spyrja sérstaklega um leyfi. Skilyrði: Efnið er notað óbreytt. Breytingar eru óheimilar nema með skriflegu leyfi útgefanda.
- Eins og nefnt var á öðrum stað: Allt efni er framleitt af bændum heima á bænum. Þess vegna mætti sumt vera „flottara“ út frá tæknilegu sjónarhorni. (En þá hefði framleiðslan verið miklu dýrari – og þá væru bara 2 eða 3 myndbönd til í staðinn fyrir 17. Þess vegna völdum við aðferðina sem íslenskir bændur notuðu í þúsund ár: að búa allt til sjálfir!)
- Viltu heimsækja bóndabæ með bekknum þínum? Hafðu samband (netfang sjá fyrir ofan) og við reynum að finna út úr því!
Best er að byrja á …
- grundvallarmyndböndunum um íslenskt búfé (landnámskynin: hestar, sauðkindur, geitur og kýr) og
- samanburðarmyndbandinu (um allar búfjártegundir sem finnast á Íslandi í dag – í samanburði).
Þá er tryggt að allir nemendur búi yfir grunnþekkingu á þessu sviði áður en lengra er haldið. (Í sveitinni þekkja auðvitað öll börnin kindur, kýr og hesta. En kannski vita þau samt ekki allt – og kannski þekkja þau ekki eins vel til hjá geitum.)
Viðkvæmar spurningar
Börn (og fullorðið fólk auðvitað líka) pæla í ýmsum hlutum sem tengjast búfé, ekki síst í kjölfar alþjóðlegu vegan-bylgjunnar. Sumt af því eru viðkvæm og vandmeðfarin mál sem er auk þess flókið að setja upp sem myndband. Mikilvægt er að ræða þau samt. Fjögur dæmi:
- Er ekki hræðilegt að dýr séu drepin til manneldis?
- Er ekki ömurlegt að kálfar fái oftast ekki að vera með mömmu sinni?
- Getur búfé verið hamingjusamt? Er það ekki bara eins og “í fangelsi”?
- Er kjötframleiðsla ekki í samkeppni við (annars konar) mannamat?
Í eftirfarandi skjali, sérstaklega fyrir kennara, finnst ýmislegt sem gott er að hafa í huga, þegar þessar spurningar eru ræddar – gott er að lesa það strax áður en lengra er haldið, því þessar spurningar geta komið upp um leið og horft er á fyrsta myndbandið:
En eftir að hafa horft á myndböndin öll og fengið innsýn í íslenska raunveruleikann, hljóta nemendurnir líka að sjá margt í öðru ljósi.
Í boði eru eftirfarandi myndbönd (staða: ágúst 2026) – ýttu á myndbandaheitið til að hoppa beint til viðkomandi myndbands auk fylgiblaðsins:
Grunnþekking: Íslenskt búfé
- Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 1: hesturinn (7:58)
- Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 2: sauðkindin (7:34)
- Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 3: geitin (6:41)
- Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 4: mjólkurkýrin (11:07)
- Búfjártegundir á Íslandi í dag – berum þær aðeins saman! (8:58)
Meira um íslenskt búfé og íslenska bændur
- Litrík hjörð! Litir í íslenska sauðfjárstofninum – stutt yfirlit (7:43)
- Beit: allra hagur! Af hverju? Vistfræðilegur fróðleikur um umdeilt mál (16:14)
„Breyta ull í fat og mjólk í mat“ – hvernig virkar þetta?
- Hvernig verður mjólkin til? Hluti 1: Til hvers er mjólk? Íslensku mjólkurdýrin (6:21)
- Hvernig verður mjólkin til? Hluti 2: Þrjú fjós, þrjú mjaltakerfi (17:40)
- Hvernig verður mjólkin til? Hluti 3: Mjólk úr kindum og geitum (9:23)
- Hvernig verður fatnaður til? Hluti 1: Ullardýrin; rúningur/klipping; þvottur (13:28)
- Hvernig verður fatnaður til? Hluti 2: Frá ull til bands (14:38)
- Hvernig verður fatnaður til? Hluti 3: Frá bandi til flíkur (10:04)
- Of dýrt? Hverjir ráða hvað maturinn kostar í búðinni? (11:52)
- Án bænda væri Ísland tómt – bændur og byggðin (og hvað þú getur gert) (10:14)
- Að velja íslenskt? Ekkert mál – ef þú ert vel læs … (um íslensk matvæli) (4:26)
- Bændur eru alltaf í vinnunni (og geta nærri allt) (13:07)
- „Gott að hafa nóg fé“. Skemmtilegt veggspjald: Algeng orð tengd fé – tekin orðrétt
- Orðatiltæki og málshættir tengdir búfé, búskap og vinnslu afurða
Fleiri myndbönd fylgja seinna. Hafðu samband við okkur (forvitni[hjá]forvitni[punktur]net), ef
- þú ert með tillögur um fleiri myndbönd,
- þú ert með ábendingar eða spurningar,
- þú ert til í að segja okkur hvernig hefur gengið að nota myndböndin eða ef
- þú vilt fá tölvupóst þegar nýtt efni er aðgengilegt.
Tilgangurinn með þessu efni er að það nýtist ykkur, kennurunum – og öðrum áhugasömum, og því þætti okkur vænt um að heyra frá ykkur!
Grunnþekking: Íslenskt búfé
Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 1: hesturinn (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 2: sauðkindin (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 3: geitin (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Íslenskt búfé (landnámskynin), hluti 4: mjólkurkýrin (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Búfjártegundir á Íslandi í dag – berum þær aðeins saman! (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Meira um íslenskt búfé og íslenska bændur
Litrík hjörð! Litir í íslenska sauðfjárstofninum – stutt yfirlit (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Beit: allra hagur! (Mikilvægur fróðleikur um umdeilt mál.) (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
„Breyta ull í fat og mjólk í mat“ – hvernig virkar þetta?
Hvernig verður mjólkin til? Hluti 1: til hvers er mjólk; íslensku mjólkurdýrin (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Hvernig verður mjólkin til? Hluti 2: þrjú fjós, þrjú mjaltakerfi (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Hvernig verður mjólkin til? Hluti 3: mjólk úr kindum og geitum (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Hvernig verður fatnaður til? Hluti 1: ullardýrin; rúningur/klipping (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Hvernig verður fatnaður til? Hluti 2: frá ull til bands (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Hvernig verður fatnaður til? Hluti 3: frá bandi til flíkur (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Bændur og íslenska samfélagið
Of dýrt? Hverjir ræða hvað maturinn kostar í búðinni? (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Án bænda væri Ísland tómt – bændur og byggðin (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Að velja íslenskt? Ekkert mál – ef þú ert vel læs … (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Bændur eru alltaf í vinnunni – og geta nærri allt (upp)
Fylgiblað fyrir kennara:
Til gamans
„Gott að hafa nóg fé!“ Skemmtilegt veggspjald: algeng orð tengd fé – tekin orðrétt (upp)
Orðatiltæki og málshættir tengdir búfé, búskap og vinnslu afurða (upp)
Athugasemdir? Ábendingar? Spurningar? Tillögur um fleira efni?
Hafðu samband við okkur: forvitni [hjá] forvitni [punktur] net
