Fyrir kennara – beint frá bónda

Íslenskur landbúnaður er öðruvísi: ómissandi fróðleikur fyrir kennara og nemendur

Ekki fyrir löngu voru svo gott sem allir Íslendingar bændur eða vinnufólk hjá bændum. Svo er hitt: „Enginn bóndi, enginn matur!“

Hér er því um grundvallaratriði að ræða, ekki bara um „einhvern atvinnuveg“ eins og marga aðra. Íslenskur landbúnaður snertir alla þjóðina: sem aldagamall menningararfur, sem undirstaða byggðarinnar og sem ómissandi grundvöllur lífsins. Þess vegna ættu allir að þekkja til þar, ekki síst börnin.

En: Hefðbundinn íslenskur landbúnaður er að mörgu leyti öðruvísi en í flestum vestrænum löndum. 90% íslenskra bænda búa með sauðfé í nánum tengslum við náttúruna, 99% íslenskra bænda eru sauðfjár- og/eða kúabændur. Þeir byggja búskapinn sinn á vel heppnuðu samspili milli manns, skepnu og náttúru.

Þess vegna er yfirleitt ekki hægt að nota upplýsingar, sem varða önnur lönd og/eða annað búfé, til að afla sér þekkingar á þessu sviði. Annars verður myndin skökk og endurspeglar ekki íslenska raunveruleikann.

Til þessa var einungis stopult efni til um íslenskan landbúnað og íslenskt búfé, sem hentar sem kennsluefni í skólum. Á sama tíma vantar undirstöðuþekkingu, sérstaklega hjá börnum sem fá ekki tækifæri til að kynnast sveitalífinu. Við, hópur bænda úr mismunandi landshlutum, vildum breyta því og bjuggum þess vegna til fjölda myndbanda og fylgitexta um flest grundvallaratriði. Hópurinn okkar heitir Áhugahópur um framfaramál í íslenskum landbúnaði og hefur starfað síðan 2023.

Þessi myndbönd eru að öllu leyti unnin af bændum, myndefnið var tekið á íslenskum bóndabæjum og sýnir hversdaginn eins og hann er: Þetta er ekki uppstillt, ekki var tónlist bætt við, en margt er skoðað í rólegheitum. Hvorki auglýsingastofur né markaðsteymi né gervigreindin komu nálægt þessum myndböndum – en margir bændur um landið allt sendu okkur myndir. Myndböndin okkar sýna (íslenska) raunveruleikann – sem er í dag ekki lengur sjálfgefið. (Þess vegna mætti sumt vera „flottara“ út frá tæknilegu sjónarhorni. En það var ekki tilgangurinn; nóg er til af hraðklipptu bling-bling-efni með dramatískri tónlist.)

Þrír aðilar voru til í að styrkja framtakið okkar:

Matvælaráðuneytið (sem heitir Atvinnuvegaráðuneytið í dag), Menningarsjóður Kaupfélags Skagfirðinga og Markaðssjóðurinn Icelandic lamb.

Markmiðið okkar er að bæta jafnt og þétt fleiri myndböndum við, meðal annars um göngur/fjárleitir og réttir, um garðyrkju og kornrækt, um framleiðslu „grunnafurða“ á borð við skyr, ost, brauð eða hangikjöt og um einfaldar en ljúffengar og 100% íslenskar uppskriftir. En einnig um viðkvæmar grundvallarspurningar, t.d. hvort það sé réttlætanlegt að drepa dýr til manneldis eða hvort kjötframleiðsla sé í samkeppni við (annars konar) mannamat.

Ert þú með óskir um fleiri myndbönd? Eða með spurningar? Ábendingar?

Hafðu samband: Sendu okkur tölvupóst á forvitni [hjá] forvitni [punktur] net.