Hvammshlíðardagatal: fróðleikur úr sveit

Hvammshlíðardagatal: fróðleikur úr sveit

Síðan 2018 hefur Karólína Elísabetardóttir, bóndi í Hvammshlíð, gefið út fróðlegt og skemmtilegt ljósmyndadagatal sem veitir innsýn í sveitalífið fyrr og nú. Ólíkt flestum öðrum dagatölum er miðlaður umfangsmikill fróðleikur á sérstakri blaðsíðu fyrir ofan hvert mánaðarblað – sem gerir 28 blaðsíður samtals, í stóru broti (42 x 21 cm) og hágæða offset-prentun í staðinn fyrir ódýra, en lélegri dígítal-prentun. Auk þess er svart-hvítur viðauki á 6 blaðsíðum til mikils gagns til að geta flett upp upplýsingum um gamla íslenska tímatalið, merkisdaga, um íslenskar mælieiningar og um sérstök orð tengd búskapnum.

Dagatalið hentar þar með fólki á öllum aldri, jafnvel lítil börn hafa gaman af sérvöldu myndunum, gömlum og nýjum. Ekki síst eru allar kindur á bænum kynntar með andlitsmynd og nafni.

Dagatalið er yfirleitt fáanlegt í nóvember, desember og fyrri part janúar, en er uppselt eftir það. Það fæst hér:

  • Fóðurblandan, Hvolsvelli
  • Fóðurblandan, Selfossi
  • Gallerí 16, Vitastíg 16, Reykjavík (mán-fös 11-16, í desember líka lau 11-14)
  • Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi
  • Lífland, Blönduósi
  • Skagfirðingabúðin, Sauðárkróki
  • Galleri Alþýðulist, Varmahlíð
  • Gallerí Rúnalist, Stórhól (í sunnanverðum Skagafirði)
  • Búnaðarsamband Eyjafjarðar, Búgarði, Óseyri 2, Akureyri

og það er sent um landið allt og til útlanda með póstinum – sendið tölvupóst á forvitni [hjá] forvitni [punktur] net

Aðaltungumál dagatalsins er auðvitað íslenska, en til að koma til móts við þýskumælandi Íslandsvini eru stuttir þýskir textar með og upp úr útgáfunni 2027 er fylgiskjal á þýsku með ítarlegri þýðingum og upplýsingum fáanlegt, sjá neðar.


Svona lítur kápan 2027 út – dagatalið sjálft verður í boði sem PDF-skjal eftir að prentaða útgáfan er seld upp. Að þessu sinni er fjallað m.a. um gular kindur sem koma heim með dökkgráan haus á haustin (arfhreinar gráar), svæðisbundin heiti í fjárhúsum sem geta valdið mögnuðum ruglingi (kró/garði o.s.frv.), hyrndar kýr í dag í myndum og reynslusögum úr öllum landshlutum. Einnig finnast uppskriftir frá 1858, á meðan 90% Íslendinga áttu heima í sveit og eldað var á hlóðum.

Samantekt/útskýringar 2027 á þýsku til niðurhals:

Fróðlegi viðaukinn 2027 er einnig aðgengilegur strax: