Fæðingardagar og gömlu mánuðirnir: Reikniskífa til að prenta út!

Bjarneyjarskífan er reikniskífa fyrir ýmsa fæðingadaga og gamla íslenska tímatalið. Hún kom út í nóvember 2025. Með þessari reikniskífu getur þú fundið fæðingadaga barna, hvolpa og kettlinga og einnig íslenskra lamba, kiðlinga, kálfa og folalda. Bjarney kom með þessa hugmynd, sem Karólína spann áfram: Auk þess getur þú notað skífuna til að finna upphafsdaga allra mánaða gamla íslenska misseristalsins – einnig í sumaraukaárum og rímspillisárum! Prentaða útgáfan seldist upp fljótlega, en hér finnst prentskjalið sem gerir þér kleift að búa til skífu sjálf/ur.

Mikilvægt er að vanda sig, sérstaklega er nauðsynlegt að nota stífan pappa til að líma á, hafa festinguna alveg í miðjunni og festa hana vel: Skrúfa með ró hentar líklega best – eftir að hafa notað gatatöng til að gera gat á nákvæman hátt á nákvæmlega réttum stað.

Til öryggis er best að „prufukeyra“ hverja og eina skífu í a.m.k. tveimur mismunandi stillingum og nota hana eingöngu ef frávikin eru hámark hálfur dagur. En ef merkingin lendir mitt á milli tveggja daga – er það þá dagurinn þar á undan eða þar á eftir?

  • Varðandi fæðingardaga skiptir það engu máli – þar er um meðaltal að ræða hvort sem er og það er hvort sem er ekki nákvæmlega vitað klukkan hvað viðkomandi sæðisfruma náði að frjóvga eggið.
  • Upphafsdagur mánaðar á hins vegar að vera nákvæmur. Til „fínstillingar“ getur þú notað vikudaginn viðkomandi mánaðar yst á skífunni, ef merkingin lendir mitt á milli tveggja daga, t.d. á milli föstudags og laugardags varðandi gormánuð – þá sérð þú strax að laugardagur er rétti upphafsdagurinn!

Hérna er prentskjalið á tveimur blaðsíðum – heimilt að deila að vild!

Hérna finnst fylgiblaðið með skífunni (2 blaðsíður – mikilvægt er bara bls. 2):