Rannsóknir

„Silfur og gull“:
frumrannsókn á eðli og erfðum kolótta og gula litarins í íslenska sauðfjárstofninum, 1. áfangi 2024-26

Litir íslensku sauðkindarinnar eru vel rannsakaðir – nema kolótt og gult, sem eru tvö afbrigði hvíta litarins. Bæði eru sjaldgæf, en vekja athygli, sérstaklega kolótt. Þessar kindur skipta árstíðabundið um lit, en bara á hausnum. Munurinn getur verið það mikill að jafnvel bóndinn sjálfur þekkir kindina sína ekki þegar hún kemur heim á haustin í fyrsta sinn.

Þessi rannsókn veitir í fyrsta sinn erfðafræðilega innsýn í þessa tvo liti, en athugar líka greiningarvandamál (til dæmis: „Er þessi kolótt eða arfhrein grá?“) og ýmislegt fleira. Rannsóknin er ekki búin, en ítarleg áfangaskýrsla finnst hér fyrir neðan. Styrkaðilar: Þróunarsjóður sauðfjárræktar og Erfðanefnd landbúnaðarins.

Ekki síst: Ef þú átt kolóttar kindur eða ættarlínu sem gefur reglulega algul lömb, endilega hafðu samband!